Endurinnritun fyrir næsta skólaár 2018-2019
Að venju er aðsókn í Tónlistarskóla Árbæjar mikil og myndast því biðlistar við skólann. Þess vegna er nauðsynlegt að nemendur sem ætla að halda áfram að stunda nám við skólann næsta vetur, endurinnriti sig nú til þess að tryggja skólavist.
Frestur til þess að ganga frá endurinnritun og greiðslu staðfestingagjalds er föstudagurinn 23.mars
Nauðsynlegt er að ganga frá umsókn á rafrænni Reykjavík https://rafraen.reykjavik.is
Umsókn skilist einnig hjá skólanum sjálfum hér Endilega uppfærið úreltar upplýsingar s.s. tölvupóst og símanúmer.
Staðfesta þarf innritun með staðfestingargjaldi kr. 14.000.- sem er óendurkræft en gengur upp í skólagjöld næsta skólaárs.
Landsbanka Íslands 0137 - 26 - 23727,
kennitala Tónlistarskóla Árbæjar: 530795-2179.
(Vinsamlegast tilgreinið kennitölu fjárhaldsmanns og nafn nemanda sem skýringu.)
Athugið að einnig má ganga frá greiðslu símleiðis. Skrifstofa Tónlistarskóla Árbæjar er opin alla virka daga frá kl. 14.00 til 16.00 Þangað til að staðfestingargjald hefur verið greitt skoðast endurinnritunin ófrágengin.
Vinsamlegast sendið kvittanir á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
með góðri kveðju
Stefán S. Stefánsson
skólastjóri
|
Vonandi hafa allir átt gott vetrafrí. Kennslan er hafin í dag samkvæmt stundaskrá
Skólastjóri
Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið:
Vetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar: Fimmtudaginn 15.febrúar, föstudaginn 16.febrúar og mánudaginn 19.febrúar (starfsdagur kennara)
Engin kennsla fer fram við skólann.
Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 20.febrúar
Tónlistarskóli Árbæjar fylgir starfsáætlunum grunnskóla í Árbæjarhverfinu að svo miklu leyti sem það er mögulegt.
Starfsáætlun skólans er þannig byggð upp að nemendur munu ekki missa úr tíma, heldur lengist skólaárið um þennan dagafjölda.
Vinsamlegast látið skólann vita ef börn verða lengur frá vegna ferðalaga og þess háttar.
Það er von okkar að vetrarfríið reynist fjölskyldum kærkomið tækifæri til að njóta skemmtilegra samvista.
með góðri kveðju
Skólastjóri
Slæmt veður síðdegis
Skv. veðurspá mun veður versna á höfuðborgarsvæðinu síðdegis og eru foreldrar og forráðamenn beðnir að fylgja börnum sínum í tónlistarskólann.
Gætum að öryggi barnanna okkar
Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!
Kennslan hefst þann 3.janúar
tonarb@tonarb.net