Veglegir tónleikar voru haldnir í Árbæjarskóla fimmtudaginn 7.október. Nemendur Jóhönnu Elísu og Elísu stigu á stokk og léku við góðar undirtektir um 60 gesta. Þó nokkrir nemendur voru að stíga sín fyrstu skref á tónleikasviðinu og verður að segjast að þeir stóðu sig frábærlega. 
Efnilegir nemendur spiluðu fínt er þeir stigu á stokk í Glym í dag. Flutt var fjölbreytt efnisskrá undir styrkri stjórn Sólborgar Valdimarsdóttur. 
Fleiri tónleikar framundan í grunnskólum hverfisins og í Tónlistarskóla Árbæjar, Krókhálsi 😀

Píanónám fyrir byrjendur og styttra komna!
Kennt er í litlum hóptímum (4 saman í hóp) Hver tími er ein kennslustund (40 mín)
Kennslan fer fram í Árbæjarskóla á eftirfarandi tímum:
Miðvikudögum kl. 13:50 - 14:40 og kl. 14:40 - 15:30
Kennari er Jóhanna Elísa Skúladóttir (sjá nánari upplýsingar hér)
Kennslan hefst miðvikudaginn 15.september 2021
ATHUGIÐ: Takmarkaður fjöldi þáttakenda
Nánar um námskeiðið:

Hér er að finna efnisskrár fyrir tónleikana í Árbæjarkirkju 15.maí 2021
Smellið á hlekkinn til að opna efnisskrána.
Tónleikar kl. 11.00 í Árbæjarkirkju
Tónleikar kl. 12.30 í Árbæjarkirkju
Tónleikar kl. 13.30 í Árbæjarkrkju
Einkunnir, umsagnir og aðrar upplýsingar um nám nemenda er að finna hér á þessari síðu undir MÍNAR SÍÐUR (Rafræn skilríki)
Ágætu nemendur
sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn, þann 22.apríl 
Sumardagurinn fyrsti er frídagur og því engin kennsla.
Gleðilegt sumar
tonarb@tonarb.net