Vortónleikarnir á morgun, þriðjudag 23.maí í Guðríðarkirkju!
Allir velkomnir - komum og hlýðum á tónlistarmenn framtíðarinnar!
Nemendur fái frekari tímasetningar um hvenær þeir eiga að mæta hjá kennurum sínum.
Frábærir tónleikar með krökkunum í Félagsmiðstöðinn Holtinu!
Tónlistarskóli Árbæjar í samvinnu við félagsmiðstöðina Holtið í Norðlingaholti stóð fyrir skemmtilegum tónleikum í húsakynnum Holtsins í Mest húsinu mánudagskvöldið 15.maí. Þar komu fram fjórar hljómsveitir úr tónlistarskólanum (yngra og eldra Norðlingaskóla og yngra og eldra samspil Krókhálsi) í bland við söngnemendur frá Erlu Stefánsdóttur söngkennara.
Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið: Engin kennsla er 1.maí. Þessi dagur er lögbundinn frídagur. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá á þriðjudaginn 2.maí
Skólastjóri
Endurinnritun fyrir veturinn 2017-2018 er hafin.
Ágæti nemandi / forráðamaður.
Að venju er aðsókn í Tónlistarskóla Árbæjar mikil og myndast því biðlistar við skólann. Þess vegna er nauðsynlegt að nemendur sem ætla að halda áfram að stunda nám við skólann næsta vetur, endurinnriti sig nú til þess að tryggja skólavist.
Frestur til þess að ganga frá endurinnritun og greiðslu staðfestingagjalds er 5.maí
Nauðsynlegt er að ganga frá umsókn á rafrænni Reykjavík https://rafraen.reykjavik.is
Staðfesta þarf innritun með staðfestingargjaldi kr. 14.000.- sem er óendurkræft en gengur upp í skólagjöld næsta skólaárs.
Staðfestingargjald má greiða beint inn á reikning:
Landsbanka Íslands 0137 - 26 - 23727,
kennitala Tónlistarskóla Árbæjar: 530795-2179.
(Vinsamlegast tilgreinið kennitölu fjárhaldsmanns og nafn nemanda sem skýringu.)
Athugið að einnig má ganga frá greiðslu símleiðis. Skrifstofa Tónlistarskóla Árbæjar er opin alla virka daga frá kl. 14.00 til 16.00
Þangað til að staðfestingargjald hefur verið greitt skoðast endurinnritunin ófrágengin. Vinsamlegast sendið kvittanir á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Með sumarkveðju og þökk fyrir gott samstarf á vetrinum sem er að líða!
Stefán S. Stefánsson
Skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar
Ágætu nemendur
Kennsla hefst í dag þriðjudaginn 18.apríl skv. stundaskrá. Vonandi koma allir endurnærðir eftir páskafríið. Starfsáætlun má sjá hér í í flipum hér að ofan.
Heimasíðan hefur verið niðri nú í nokkra daga vegna tæknilegra vandamála og biðjumst við velvirðingar á því.
Eftir annasama prófaviku hér í Tónlistarskóla Árbæjar er nú að líða að páskafríi. Það hefst frá og með laugardeginum 8.apríl.
Kennslan hefst aftur þriðjudaginn 18.apríl
Gleðilega páska!
Vinsamlegast athugið að skrifstofan er lokuð fimmtudaginn 6.apríl og föstudaginn 7.apríl af óviðráðanlegum orsökum.
Sendið okkur tölvupóst með erindi - Hægt er að ná beint á kennara hér
Skólastjóri
tonarb@tonarb.net