Tónlistarskóli Árbæjar - Í þínu hverfi

Kennsla fer fram í : Ingunnarskóla - Norðlingaskóla - Selásskóla - Ártúnsskóla - Stangarhyl 7 -
→

Fréttir

Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið: 
Í næstu viku (27.mars til og með 31.mars) verða próf við Tónlistarskóla Árbæjar.    prof mynd
  
Í þessari prófaviku verður ekki hefðbundin kennsla heldur mæta nemendur í próf sem undirbúin hafa verið af kennurum þeirra. 
 
Tímasetning prófanna er í höndum kennara og fá nemendur að vita hvenær þau eiga að mæta í próf. ítrekað skal að hefðbundnir tímar verða ekki í næstu viku. 

Hvernig próf eru þetta? 

Um er að ræða nokkrar tegundir prófa. Hvert og eitt fer eftir stöðu nemanda. Helstu tegundir eru þessar:
  • Áfangapróf: Nemandi tekur áfangapróf að grunnprófi (algengast) en Tónlistarskóli Árbæjar hefur skipt niður opinberu áfangaprófunum (Grunnpróf, miðpróf og framhaldspróf, en þau próf eru sambærileg við samræmdu prófin og koma utanaðkomandi prófdómarar að dæma þau próf. Sjá nánar á www.profanefnd.is) 
  • Vorpróf: Ef ofangreind skilyrði eiga ekki við tekur nemandi vorpróf og hlýtur einkunn skv. prófdómara og umsagnir. 
  • Grunn- og miðpróf á vegum prófanefndar: Utanaðkomandi prófdómari á vegum prófanefndar og prófin fara í gegn um prófanefndina. 
Hafi nemandi af sérstökum ástæðum (Veikindi, nýbyrjaður, fjarvera af eðlilegum orsökum osfrv.) ekki tök á því að taka próf þá hlýtur nemandi umsögn og iðniseinkunn í lok annar. 

Þessi próf eiga ekki við nemendur forskólans, en þau fá umsögn í lok ársins.

Ítrekað skal að allir tímar falla niður á meðan á prófaviku stendur, þar með talið samspil, forskóli og  bóklegar greinar 

Páskafrí hefst svo að lokinni prófaviku. 

Ef eitthvað er óljóst hafið samband við kennara en síma og tölvupóst þeirra má finna hér

Vetrafrí við Tónlistarskóla Árbæjar mydn Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið Vetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar fimmtudaginn 17.febrúar föstudaginn 18.febrúar Engin kennsla fer fram við skólann 2

Gleðilegt nýtt ár

Ágætu tónleikagestir - hér getur að líta efnisskrár fyrir tónleikana í dag, góða skemmtun! jol 2022

Síðasti kennsludagur er þriðjudagurinn 20.desember. Umsagnir kennara er að finna á Mínum Síðum á heimasíðu skólans: www.tonarb.net


Með ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár
Kennarar og starfsfólk Tónlistarskóla Árbæjar

Komið þið sælir ágætu nemendur og forráðamenn við Tónlistarskóla Árbæjar!    VETRARFRI
 
Vetrarfrí við Tónlistarskóla Árbæjar!
 
Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið:
 
Vetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar
 
  • Föstudaginn 21. oktbóber
  • Mánudaginn 24. oktbóber
  • Þriðjudaginn 25. oktbóber
 
Engin kennsla fer fram við skólann. Flestir grunnskólar eru lokaðir þessa daga.
 
Tónlistarskóli Árbæjar fylgir starfsáætlunum grunnskóla í Árbæjarhverfinu að svo miklu leyti sem það er mögulegt. Starfsáætlun skólans er þannig byggð upp að nemendur munu ekki missa úr tíma, heldur lengist skólaárið um þennan dagafjölda.
 

Vinsamlegast látið skólann vita ef börn verða lengur frá vegna ferðalaga og þess háttar.

 
Það er von okkar að vetrarfríið reynist fjölskyldum kærkomið tækifæri til að njóta skemmtilegra samvista.

Ágætu nemendur og forráðamann

Við þökkum ánægjulegt samstarf á árinu og sendum hér með slóð inn á Facebook síðu okkar. Þar má m.a. finna myndir af tónleikum á skólaárinu. 
Allar upplýsingar um námsframvindu, einkunnir, mætingar, skólagjöld og fleira má finna á MÍNAR SÍÐUR hér á heimasíðunni. 

Þó nokkrar breytingar hafa orðið á kennaraliði okkar. Andri Ólafsson, Ingvar Alfreðsson og Helgi Reynir Jónsson láta af störfum og þökkum við kærlega vel unnin störf og óskum þeim góðs gengis í framtíðinni. Nýir kennarar hafa verið ráðnir og munu upplýsingar um þá birtast á heimsíðunni síðar. 

Við bendum á starfsáætlun skólans fyrir frekari upplýsingar um skólastarfið næstkomandi haust.     

Þó nokkrir nemendur tóku grunnpróf sem er eins konar ,,samræmt" próf í tónlist á vegum prófanefndar tónlistarskólanna. Nemendur Tónlistarskóla Árbæjar stóðust prófið með ágætum. 

Tónlistarskóli Árbæjar kennir nú inni í eftirfarandi grunnskólum: 
Ingunnarskóla - Norðlingaskóla - Selásskóla - Ártúnsskóla- Árbæjarskóla sem og í húsnæði okkar að Krókhálsi 5. 

Skrifstofan opnar að nýju um miðjan ágúst. Hægt er að senda okkur tölvupóst í sumar. 

Með ósk um gott og gleðilegt sumar! 

Sjáumst í haust 😊

Kennarar og starfsfólk Tónlistarskóla Árbæjar

587-1664

tonarb@tonarb.net

Heimilisfang

KRÓKHÁLS 5 og 5a
STANGARHYL 7 (Bakdyramegin)
110 REYKJAVÍK
110 REYKJAVÍK

Skrifstofa

Mánudag til föstudags
MÁNUDAG - FIMMTUDAGS
09:00 - 17:00 (GMT 0)
14.00 - 16:00