Jólatónleikarnir verða í
Árbæjarkirkju á laugardaginn 15.desember og verða þrískiptir
Nemendur fá nákvæmari tímasetningar frá kennurum sínum. Efnisskrár verða birtar hér á vefnum samdægurs.
Kennt verður í vikunni á eftir jólatónleikunum 17. til 19. desember. Jólafríið hefst fimmtudaginn 20. desember
Athugið að ekki spila allir nemendur á þessum tónleikum enda ekki rými til þess. Markmið skólans er að hver nemandi komi fram að minnsta kosti einu sinni til tvisvar á tónleikum á hverjum vetri.
Allir velkomnir!
Skólastjóri
Ágæta foreldrar og forráðamenn 
Í næstu viku 19. til 23.nóvember er svokölluð foreldravika í Tónlistarskóla Árbæjar. Því bjóðum þér/ykkur að koma í kennslutíma til nemandans, fylgjast með námsframvindu, spyrja spurninga og annað sem lýtur að námi nemandans. Gott er að hafa samband við kennara og láta vita af komu ykkar.
Það er markmið okkar hjá Tónlistarskóla Árbæjar að halda uppi góðu og ítarlegu sambandi við nemendur og forráðamenn um skólastarfið.
Eigir þú ekki heimangengt í næstu viku viljum við bjóða þér til foreldraviðtals síðar, á tíma sem ákvarðaður er af kennara og ykkur í sameiningu.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!
skólastjóri
| Vel heppnuð tónleikavika í Tónlistarskóla Árbæjar | |
| Skemmtilegir tónleikar í Selásskóla þriðjudaginn 13.nóvember | ![]() |
| Norðlingaskóli 14.nóvember. Einbeittir hljóðfæraleikarar | ![]() |
| Ingunnarskóli 15.nóvember - Þéttsetinn bekkurinn | ![]() |
Fleiri myndir er að finna á Facebook síðu okkar
Vetrafrí við Tónlistarskóla Árbæjar

Ágætu nemendur og forráðamenn
Við vonum að allir hafi átt gott sumar. Nú fer starfsemin að hefjast hjá okkur. Á þessari skýringamynd sést skipulag fyrstu dagana. Foreldrar og nemendur eru beðnir að koma á móttökudagana, hitta kennara, skipuleggja tíma og ganga frá greiðslu skólagjalda. Slíkt má einnig gera í gegn um síma. Stöðu skólagjalda má sjá hér á Mínar síður (þarf rafræn skilríki eða íslykil) Kennslan hefst svo fimmtudagin 23.ágúst. Hlökkum til að hitta ykkur!
Nemendur Ártúnsskóla komi föstudaginn 24.ágúst á milli 14.00 og 18.00 í Krókháls.
Skólastjóri

Tónslitarskóli Árbæjar er nú kominn í frí að sinni. 
Starfið hefst aftur þann 23.ágús næstkomandi. Sjá nánari dagsetningar og starfsáætlun hér
Þeir sem þurfa að koma fyrirspurnum til okkar er bent á tölvupóstinn - við reynum að svara eins fljótt og hægt er :)
Þökkum frábært samstarf í vetur og einstaklega skemmtilegan og árangursríkan vetur! Hér er að finna fjölda mynda og fréttta úr starfinu
Gleðilegt sumar!
tonarb@tonarb.net