Tónlistarskóli Árbæjar - Í þínu hverfi

Kennsla fer fram í : Ingunnarskóla - Norðlingaskóla - Selásskóla - Ártúnsskóla - Stangarhyl 7 -
→

Fréttir

Vonum að allir komin endurnýjaðir til baka úr sumarfríinu. Skrifstofan opnar fimmtudaginn 17.ágúst kl. 14.00                                                                          

Kennslan hefst svo mánudaginn 28. ágúst. Sjá starfsáætlun skólans hérflautukrakkar

Minnum á skemmtilegar námsbrautir sem reyndust afar vel síðastliðinn vetur. 

Ukulele - Bjóðum upp á nám á hið vinsæla hljóðfæri Ukulele sem hentar afar vel til kennslu á öllum aldri. Einnig munum við notast við Ukulele í forskólakennslunni. 

Fornám á píanó og gítar.

Litlir hóptímar sérlega hentugir nemendum sem vilja kynnast hljóðfæranámi og vita hvort að það sé fyrir þá eður ei. Áður kennt sem píanónámskeið og gítarnámskeið en er nú hluti af námi við Tónlistarskóla Árbæjar. Notast er við speglaða kennslu (flipped classroom) þar sem nemendur hafa aðgang að kennslumyndböndum til að læra lögin heima. Kennsla fer fram að mestu rétt eftir skóla.

Söngur og Gítar/Píanó.

Mikil ánægja hefur verið með þessa braut (aðeins heilt nám) þar sem markmið kennslunnar er að nemandi geti leikið undir eigin söng. Námið er hugsað sem samþætting þessarra tvegjja þátta.

Vortónleikar Tónlistarskóla Árbæjar voru haldnir 23. og 24.maí sl. í Guðríðarkirkju og Árbæjarkirkju. Það er ekki úr vegi að hrósa nemendum fyrir einstaklega góða tónleika.   forskoli gudridarkirkja

Skoðið nokkrar myndir af Facebook síðu okkar hér.

 

Einkunnir og vitnisburðir hafa verið sendir út til allra nemenda.  

Óskum ykkur gleðilegs og góðs sumars!

 

Skólastjóri 

 

Vortónleikar Tónlistarskóla Árbæjar í Árbæjarkirkju miðvikudaginn 24.maí     aerbaeajarkirkja

Komum og hlýðum á tónlistarmenn og konur framtíðarinnar. 

Nemendur fá nánari tímasetningar hjá kennurum sínum um hvenær þeir eiga að mæta. 

Á morgun miðvikudag, er síðast kennsludagur við Tónlistarskóla Árbæjar

Vortónleikarnir á morgun, þriðjudag 23.maí í Guðríðarkirkju!    gudridarkirkja

Allir velkomnir - komum og hlýðum á tónlistarmenn framtíðarinnar!

Nemendur fái frekari tímasetningar um hvenær þeir eiga að mæta hjá kennurum sínum.

Frábærir tónleikar með krökkunum í Félagsmiðstöðinn Holtinu!

Tónlistarskóli Árbæjar í samvinnu við félagsmiðstöðina Holtið í Norðlingaholti stóð  fyrir skemmtilegum tónleikum í húsakynnum Holtsins í Mest húsinu mánudagskvöldið 15.maí. Þar komu fram fjórar hljómsveitir úr tónlistarskólanum (yngra og eldra  Holtid 01 Norðlingaskóla og yngra og eldra samspil Krókhálsi) í bland við söngnemendur frá Erlu Stefánsdóttur söngkennara.

Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið: Engin kennsla er 1.maí. Þessi dagur er lögbundinn frídagur. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá á þriðjudaginn 2.maí    fyrstiMai

 

Skólastjóri 

587-1664

tonarb@tonarb.net

Heimilisfang

KRÓKHÁLS 5 og 5a
STANGARHYL 7 (Bakdyramegin)
110 REYKJAVÍK
110 REYKJAVÍK

Skrifstofa

Mánudag til föstudags
MÁNUDAG - FIMMTUDAGS
09:00 - 17:00 (GMT 0)
14.00 - 16:00