Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.
DownloadVetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar fimmtudaginn 25. febrúar, föstudaginn 26. febrúar. Engin kennsla fer fram við skólann.
Tónlistarskóli Árbæjar fylgir starfsáætlunum grunnskóla í Árbæjarhverfinu að svo miklu leyti sem það er mögulegt.
Starfsáætlun skólans er þannig byggð upp að nemendur munu ekki missa úr tíma, heldur lengist skólaárið um þennan dagafjölda.
Vinsamlegast látið skólann vita ef börn verða lengur frá vegna ferðalaga og þess háttar.
Það er von okkar að vetrarfríið reynist fjölskyldum kærkomið tækifæri til að njóta skemmtilegra samvista.
Nemendur og forráðamenn vinsamlegast athugið:
Vetrarfrí verða við Tónlistarskóla Árbæjar fimmtudaginn 20. október, föstudaginn 21. október og mánudaginn 24.október. Engin kennsla fer fram við skólann.
Tónlistarskóli Árbæjar fylgir starfsáætlunum grunnskóla í Árbæjarhverfinu að svo miklu leyti sem það er mögulegt.
Starfsáætlun skólans er þannig byggð upp að nemendur munu ekki missa úr tíma, heldur lengist skólaárið um þennan dagafjölda.
Vinsamlegast látið skólann vita ef börn verða lengur frá vegna ferðalaga og þess háttar.
Það er von okkar að vetrarfríið reynist fjölskyldum kærkomið tækifæri til að njóta skemmtilegra samvista.
með góðri kveðju
Skólastjóri
Jólafrí við Tónlistarskóla Árbæjar hefst frá og með föstudeginum 18. desember
Vel heppnaðir jólatónleikar voru haldnir á laugardaginn var í Árbæjarkirkju. Skoðið myndir frá tónleikunum á Facebook síðu okkar hér!
Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár frá okkur í Tónlistarskóla Árbæjar
Kennsla hefst að nýju mánudaginn 4.janúar
Jólatónleikarnir í Árbæjarkirkju á laugardaginn 12.des verða þrískiptir 11.00
12.30
14.00
Nemendur fá nákvæmari tímasetningar frá kennurum sínum.
Kennt verður í næstu viku og jólafrí hefst frá og með föstudeginum 18.des næstkomandi.
Allir velkomnir!
Skólastjóri
Samkvæmt tilmælum frá Almannavörnum þá viljum við taka eftirfarandi fram:
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir ofsaveðrið, sem spáð hefur verið, fyrst munu skella á á Suðurlandi. Ekki sé ráðlegt að vera á ferðinni þar eftir klukkan 12 á hádegi. Á öðrum stöðum á landinu, og þar með talið á höfuðborgarsvæðinu, er ráðlegt að vera ekki á ferðinni eftir klukkan 17.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Spáð er austan ofsaveðri á morgun og fram á þriðjudag á öllu landinu með snjókomu og byl. Mikill vindhraði er í kortunum.
Þetta gæti að sjálfsögðu breyst þannig að óveðrið skelli eitthvað fyrr á. Fylgjumst vel með veðri og sendum börn ekki ein í skólann ef ástæða er til að hafa áhyggjur af veðrinu.
Sendum börn ekki ein í skólann, tryggjum öryggi barnanna.
með kveðju
Stefán Stefánsson
skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar