Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.
DownloadTónleikaviku Tónlistarskóla Árbæjar lauk með tónleikum í Selásskóla - Á sal skólans. Þar léku nemendur fyrir fullum sal af fólki og vart hefði verið hægt að koma mörgum til viðbótar í sæti. Í skemmstu máli má frá því segja að þetta voru fjölbreyttir og skemmtilegir tónleikar þar sem nemendur styttra sem lengra komnir léku við hvurn sinn fingur.
Sjá fleiri myndir frá tónleikunum hér á Facebook síðu okkar.
Tónleikar í Norðlingaskóla voru haldnir 9. mars. Fjölbreyttur hópur nemenda spilaði í Glym og gerði góða lukku. Samspilið lék We are The Campions við góðar undirtektir.
Sjáið fleiri myndir inn á Facebook síðu okkar
Vel heppnaðir tónleikar í Ingunnarskóla fóru fram á þriðjudaginn í þessari viku og komu fram nemendur og fluttu verk sín fyrir fullum sal af gestum. Skemmst er frá því að segja að nemendur voru sjálfum sér og Tónlistarskóla Árbæjar til sóma.
Nokkrar myndir til viðbótar má sjá frá tónleikunum hér á Facebook síðu skólans.
Tónleikarnir eru þáttur í tónleikaröð skólans en alls fóru fram þrennir tónleikar í þessari viku.
Framkoma nemenda á slíkum tónleikum er mikilvægur þáttur í tónlistarnámi. Slík framkoma er þjálfun og eykur öryggi nemenda gagnvart því að koma fram fyrir áheyrendur og flytja tónlist sína. Það er ekkert sem kemur í stað þessarar þjálfunar annað en að einfaldlega koma fram á tónleikum.
Hljómsveit frá Tónlistarskóla Árbæjar undir stjórn Helga Reynis lék fyrir fullu húsi í Bústaðakirkju á æskulýðsmessunni sunnudaginn 6.mars Hljómsveitin spilaði 2 lög og hlaut frábæra viðtökur.
Hér má sjá myndir frá þessum skemmtilegu tónleikum. Þau Tómas, Dagbjört og Ingvar Hálfdán stóðu sig frábærlega í lögunum Hello (Adele) og We are the Champions (Queen) Fjöldi áheyrenda var í kirkjunni sem gerðu góðan róm að flutningi krakkanna.
Séra Pálmi Matthíasson messaði
Tónleikaröð nemenda í næstu viku!
Nemendur spila verkefni sem þeir eru að fást við. Athugið að ekki spila allir nemendur á tónleikunum, sumir ekki tilbúnir með efni, aðrir forfallaðir osfrv. Það að koma fram á tónleikum er hluti af tónlistarlegu uppeldi nemenda og stefna skólans er að nemandi komi að minnsta kosti fram einu sinni á ári.
Í vikunni á eftir er prófavika. Engin kennsla fer fram í þeirri viku enda eru kennarar að prófdæma og sitja yfir prófum nemenda. Nemendur verða boðaðir í þessi próf af kennurum sínum.
Páskafrí hefst svo frá og með mánudeginum 21.mars og hefst kennsla aftur þriðjudaginn 29.apríl