Salient is an excellent design with a fresh approach for the ever-changing Web. Integrated with Gantry 5, it is infinitely customizable, incredibly powerful, and remarkably simple.
DownloadNú er skólastarfið að hefjast hjá okkur í Tónlistarskóla Árbæjar. Til okkar eru komnir tveir nýir kennarar þeir Una Stefánsdóttir flautu - píanóleikari og söngkona og Gunnar Leó Pálsson trommuleikari og bjóðum við þá velkomin til starfa. Einnig kemur Guðbjörg Ragnarsdóttir aftur til starfa eftir árs leyfi, og bjóðum við hana einnig velkomna aftur til starfa.
Margt spennandi er á döfinni hjá okkur og ýmsar nýjungar.
Hér eru nokkrar hagnýtar upplýsingar um næstu daga í skólastarfinu.
Móttökudagar
Móttökudagar verða í næstu viku og munu þeir eiga sér stað á Krókhálsi 5 (og 5a) 3h. Athugið að lyfta er í Krókhálsi 5a.
Kennarar munu hafa samband í þessari viku upp á nánari tímasetningar.
Móttökudagar verða á þessum dögum:
Miðvikudagur 24.ágúst:
Með áherslu á nemendur í Ingunnarskóla. Staðsetning: Krókhálsi 5 (og 5a) - Nemendur hitti kennara sinn með stundartöflu og gangi frá innritun.
Tími: 14.00 til 18.30
Fimmtudagur 25.ágúst
Með áherslu á nemendur í Norðlingaskóla. Staðsetning: Krókhálsi 5 (og 5a) - Nemendur hitti kennara sinn með stundartöflu og gangi frá innritun.
Tími: 14.00 til 18.30
Föstutudagur 26.ágúst
Með áherslu á nemendur í Selásskóla og Krókhálsi. Staðsetning: Krókhálsi 5 (og 5a) - Nemendur hitti kennara sinn með stundartöflu og gangi frá innritun. Tími: 14.00 til 18.30
Vonum að allir komin endurnýjaðir til baka úr sumarfríinu. Skrifstofan opnar mánudaginn 15.ágúst kl. 14.00
Kennslan hefst svo mánudaginn 29. ágúst. Sjá starfsáætlun skólans hér
Minnum á nýjungarnar í skólastarfinu í vetur:
Ukulele - Bjóðum upp á nám á hið vinsæla hljóðfæri Ukulele sem hentar afar vel til kennslu á öllum aldri.
Tölvutónlist - Hvernig skapa má tónlist með tölvu - Kennt á tölvuna sem um hljóðfæri væri að ræða. Notaður hugbúnaður til tónlistarsköpunar.
Fornám á píanó og gítar.
Litlir hóptímar sérlega hentugir nemendum sem vilja kynnast hljóðfæranámi og vita hvort að það sé fyrir þá eður ei. Áður kennt sem píanónámskeið og gítarnámskeið en er nú hluti af námi við Tónlistarskóla Árbæjar. Notast er við speglaða kennslu (flipped classroom) þar sem nemendur hafa aðgang að kennslumyndböndum til að læra lögin heima. Kennsla fer fram að mestu rétt eftir skóla.
Söngur og Gítar/Píanó.
Mikil ánægja hefur verið með þessa braut (aðeins heilt nám) þar sem markmið kennslunnar er að nemandi geti leikið undir eigin söng. Námið er hugsað sem samþætting þessarra tvegjja þátta.
Þann 17. maí síðastliðinn fóru kennararnir Kristján Guðjónsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson ásamt nemendum sínum í heimsókn á hjúkrunarheimilið Eir. Þar spiluðu krakkarnir fyrir heimilisfólkið og foreldra sína við mikla ánægju þeirra sem á hlýddu. Mæltist heimsóknin einkar vel fyrir og er stefnt að því að endurtaka leikinn að ári.
Tónlistarskóli Árbæjar, með útibú í Selásskóla, braut upp skólastarfið í síðustu kennsluvikunni og hélt tónleika fyrir börnin á leikskólanum Rauðaborg. Ekki var annað að sjá en yngsta kynslóðin skemmti sér konunglega og væri gaman að endurtaka þetta á næsta skólaári..
Þriðjudaginn 17. maí fóru nokkrir píanónemendur úr Tónlistarskóla Árbæjar að spila fyrir heimilisfólkið á Hjúkrunarheimilinu í Skógarbæ.
Heimilisfólkið safnaðist saman í sal Félagmiðstöðvar Skógarbæjar og hlýddu á nemendur spila. Þeir stóðu sig að sjálfsögðu mjög vel. Að spilamennsku lokinni var boðið upp á smávegis hressingu sem krökkunum þótti ekki leiðinilegt.
Mikil ánægja var með heimsóknina og talað var um hvað það væri gaman að heyra svo fjölbreytta tónlist sem flutt var, allt frá háklassík upp í popptónlist.
Þau vildu endilega að við kæmum aftur og við reynum auðvitað að stefna að því :-)