Umsóknir um nám við Tónlistarskóla Árbæjar
Reykjavíkurborg hefur nú aflétt aldurstakmörkunum í tónlistarnámi og geta því allir sótt um nám við tónlistarskóla, sama á hvaða aldri þeir eru.
Hægt er að sækja um nám hjá tónlistarskólanum hér á síðunni og í Rafrænni Reykjavík.
Nánari upplýsingar í Tónlistarskóla Árbæjar sími 587 1664 og Símaver Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11.
Vinsamlegast athugið að við endurinnritun er nauðsynlegt að greiða staðfestingargjald kr. 14.000.
Hafi staðfestingargjald ekki verið greitt fyrir 1.maí ár hvert skoðast nemandi hættur og teknir verða inn nemendur af biðlistum.
Hægt er að greiða staðfestingargjald beint á reikning skólans.
Eftirfarandi eru reikningsupplýsingar:
Tónlistarskóli Árbæjar
Kt. 530795-2179
Banki-137- höfuðbók 26, Reikn 23727
Samspil við Tónlistarskóla Árbæjar
Samspilshópar- minni og stærri samspilshópar þar sem hin félagslega hlið tónlistariðkunar er ræktuð. Samleikur og hlustun í mörgum mismunandi hópum s.s. þverflautusamspil, píanósamspil, gítarsamspil ofl.
Tónleikar og tónfundir. Nokkrir minni tónfundir er haldnir og fara þeir fram í Norðlingaskól - Selásskóla - Krókhálsi og Ingunnarskóla. Stærri tónleikar s.s. jóla- og vortónleikar eru haldnir í Árbæjarkirkju og eða Guðríðarkirkju.
Miklar kröfur eru gerðar til nemenda sem skráðir eru í samspil um mætingu. Einn nemandi sem ekki mætir á æfingar án fullgildra ástæðna skemmir um leið fyrir öðrum nemendum samspilshópsins.
Tónlistarskóli Árbæjar áskilur sér fullan rétt til að skipta út nemendum í samspilshópum sé fyrir því gild ástæða.
Hér er slóðin á fjarkennslusíðu Tónlistarskóla Árbæjar. Athugið að nemendur þurfa að skrá sig sérstaklega fyrir fjarkennsluna.
HEILT NÁM: 2x25 mín í einkakennslu. (Eða einu sinni 50 mín í viku)
Aukagreinar:
Á námstorginu www.tonlistarkennsla.net er gjaldfráls aðangur fyrir þá nemendur Tónlistarskóla Árbæjar sem þess óska
Þar eru kennd fög að grunn-og miðnámi. Þau eru:
Annað sem stendur nemendum til boða:
VERÐ ALLT SKÓLAÁRIÐ: 221,772 kr.
Ath. vorönn er lengri en haustönn
HLUTANÁM:
Hlutanám: 30 mín einkatími á viku
Aukagreinar:
Á námstorginu www.tonlistarkennsla.net er aðangur fyrir Tónlistarskóla Árbæjar
Þar eru kennd fög að grunn-og miðnámi. Þau eru:
Annað sem stendur nemendum til boða:
VERÐ ALLT SKÓLAÁRIÐ: 165,916 kr.
FORSKÓLI litlir hóptímar 1 klst á viku
Leiðbeinandi aldur: 6-8 ára.
VERÐ ALLT SKÓLAÁRIÐ: 98,715 kr.
FORNÁMSBRAUTIR - LITLIR HÓPAR ÞAR SEM NOTAST ER VIÐ SPEGLAÐA KENNSLU. (NEMENDUR FÁ VEFLÆGA AÐSTOÐ VIÐ NÁMIÐ)
TILVALIÐ FYRIR ÞÁ SEM VILJA PRÓFA HLJÓÐFÆRANÁM
Píanófornám (40 mín, 4 í hóp 1x í viku) | Allt skólaárið (til loka maí) 86,121 kr. |
Gítarfornám (40 mín, 4 í hóp 1x í viku) | Allt skólaárið (til loka maí) 86,121 kr. |
Bóklegir net-áfangar aðeins: árgjald 22.500 kr. (Sjá www.tonlistarkennsla.net)
Systkinaafsláttur er 5% á barn
Allar greiðslur skólagjalda fara í gegnum Sportabler.is.
Hægt er að ráðstafa frístundakorti Reykjavíkurborgar til greiðslu skólagjalda innan Sportabler.
Ganga skal frá greiðslutilhögun skólagjalda áður en nám við Tónlistarskóla Árbæjar hefst.
Boðið er upp á skiptingu gjalda í mest 8 mánuði með Visa, Euro eða greiðsluseðlum.
Prófgjöld vegna prófa á vegum Prófanefndar Tónlistarskóla (http://www.profanefnd.is/) greiðast af nemendum.
Reykjavíkurborg hefur nú aflétt aldurstakmörkunum í tónlistarnámi og geta því allir sótt um nám við tónlistarskóla, sama á hvaða aldri þeir eru.
Sækja skal um nám á Rafrænni Reykjavík.
Gott er að setja afrit af umsókn inn á Mínar Síður hér á heimasíðunni.
Nánari upplýsingar í Tónlistarskóla Árbæjar sími 587 1664 og Símaver Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11.
Vinsamlegast athugið að við endurinnritun er nauðsynlegt að greiða staðfestingargjald kr. 14.000.
Hafi staðfestingargjald ekki verið greitt fyrir 1.maí ár hvert skoðast nemandi hættur og teknir verða inn nemendur af biðlistum.
Hægt er að greiða staðfestingargjald beint á reikning skólans.
Eftirfarandi eru reikningsupplýsingar:
Tónlistarskóli Árbæjar
Kt. 530795-2179
Banki-137- höfuðbók 26, Reikn 23727
Hvernig og hvar fer kennslan fram?
Kennsla fer fram í Tónlistarskóla Árbæjar, Krókhálsi 5, þriðju hæð, Ingunnarskóla í Grafarholti, Ártúnsskóla, Norðlingaskóla og í Selásskóla.
Hvenær byrjar skólinn?
Hvað er í boði?
Kennt er samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskóla útgefinni af Menntamálaráðuneytinu með megináherslu á grunn- og miðnám.
Hvaða hljóðfæri er kennt á?
Kennt er á eftirtalin hljóðfæri við Tónlistarskóla Árbæjar:
* Píanó
* gítar
* bassa
* trommur
* hljómborð
* þverflautu
* saxófón
* rafgítar
Söngnám.
Boðið er upp á einkatíma í söng.
Hverjar eru aukagreinarnar?
Tónfræðinám við Tónlistarskóla Árbæjar samanstendur af tónsmíðum, tónfræði, tónlistarsögu, hljóðfærafræði og tónheyrn. Ítarlegur vefstuðningur er við tónfræðanám nemenda. Fullkomnar kennslusíður með videó og fullkomnum margmiðlunarsíðum tryggja skemmtilega og árangursríka kennslu. Í ár eru aukagreinar eingöngu kenndar í fjarnámi sjá nánar hér á www.tonlistarkennsla.net Hafið samband við Tónlistarskóla Árbæjar ef nemandi hyggst læra tónfræði.
Eru hljómsveitir?
Samspilshópar- minni og stærri samspilshópar þar sem hin félagslega hlið tónlistariðkunar er ræktuð. Samleikur og hlustun í mörgum mismunandi hópum s.s. rokksveitir, forskólahópar, píanósamspil, gítarsamspil ofl.
Hvað með tónleika?
Tónleikar og tónfundir. Nokkrir minni tónfundir er haldnir og fara þeir fram í grunnskólum sem Tónlistarskóli Árbæjar kennir við
Stærri tónleikar s.s. jóla- og vortónleikar eru haldnir í Árbæjarkirkju og Guðríðarkirkju
Hvernig veit ég að námið er fullgilt tónlistarnám?
Allt nám í hljóðfæragreinum miðast við almenna námsskrá og eru þreytt stigspróf við skólann. Þeir nemendur sem ekki taka stigspróf taka vorpróf. Verkefni og próf eru haldin í aukagreinum.
Hvaða námsleiðir er boðið upp á?
Heilt nám : Einkatímar 2svar í viku (2x25 mín.) Aukagreinar (Tónfræði, tónheyrn, tónlistarsaga, samspil) 1sinni til 2svar í viku.
Aukagreinar 2018 til 2019 verða kenndar í fjarnámi.
Aukagreinar (nema samspil) getur nemandi valið um að mæta í tíma í skólanum eða stunda námið á netinu. Nemandi hefur þar aðgang að sérhönnuðu vefkennsluefni Tónlistarskóla Árbæjar sem tengist getustigi og hljóðfæranámi hans. Eftir ákveðna áfanga þreytir nemandi próf í tónfræðigreinum sem eru í samræmi við aðalnámskrá. Valið er í samspil með tilliti til getu nemanda.
Hálft nám : Einkatímar 1sinni í viku (30 mín) aukagreinar 1sinni í viku (Tónfræði, tónheyrn, tónlistarsaga, samspil.) Nemandi getur einnig valið vefstudda tónfræðikennslu. Tilvalið fyrir nemendur og forráðamenn þar sem verið er að prófa tónlistarnám, þ.e. hvort það henti nemandanum.
Hvernig sæki ég um?
Allar umsóknir þurfa að fara um Rafræna Reykjavík sem er þjónustugátt fyrir borgarbúa á netinu. Rafræna Reykjavík má nálgast á veffanginu www.rvk.is.
Einnig má senda afrit af umsóknum hér á þessari vefsíðu undir mínar síður (rafræn skilríki eða íslykill)
Spurt um píanónám
Þar sem við eigum ekki píanó og höfum ekki hug á að kaupa, langar mig til að spyrja: Er ekki nauðsynlegt að eiga sjálfur píanó svo að hægt sé að æfa sig heima ? Er kannski möguleiki á að æfa sig td. á rafmagnspíanói eða hljómborði?
Svar:
Fyrir utan að vera augljóslega mun hagkvæmara fjárhagslega, en slík tæki þurfa ekki að vera mjög dýr, þá er það einnig kostur fyrir nemendur að geta æft sig með heyrnartólum og valda þannig litlu ónæði t.d. í fjölbýlishúsum.Þegar líður á námið og verkin taka að þyngjast eykst samt nauðsyn þess að nemandi hafi aðgang að venjulegu píanói.
Það er ekki nauðsynlegt fyrst um sinn að eiga fullbúið píanó. Til eru góð rafmagnspíanó sem gott getur verið að byrja námið á. Ef sú leið er valin mælum við með að hljómborðið sé með venjulegum píanóáslætti. Fyrir utan að vera augljóslega mun hagkvæmara fjárhagslega, en slík tæki þurfa ekki að vera mjög dýr, þá er það einnig kostur fyrir nemendur að geta æft sig með heyrnartólum og valda þannig litlu ónæði t.d. í fjölbýlishúsum. Þegar líður á námið og verkin taka að þyngjast eykst samt þörfin á því að nemandi hafi aðgang að venjulegu píanói.
tonarb@tonarb.net