Hafdís Bjarnadóttir tónskáld og rafgítarleikari fæddist árið 1977. Hún nam rafgítarleik við Tónlistarskóla FÍH frá árunum 1995-2002 hjá Þórði Árnasyni, Birni Thoroddsyni,
Hilmari Jenssyni og Jóni Páli Bjarnasyni. Þaðan lauk Hafdís kennaraprófi í rytmískri tónlist vorið 2001 og árið eftir burtfararprófi á rafgítar frá sama skóla. Sama ár kom
út geisladiskurinn Nú hjá Smekkleysu með tónlist hennar í flutningi eigin hljómsveitar. Sú plata þótti brúa landamæri milli ýmissa tónlistarstefna, þ.á.m. djass, rokks,
þjóðlaga, endurreisnartónlistar og nútímatónlistar. Í desember 2009 kom svo út önnur sólóplata Hafdísar í svipuðum dúr, Jæja, og sem fyrr leitast Hafdís við að blanda saman
ólíkum hljóðfærum og stefnum.
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Sími: 6617327
Vorið 2007 lauk Hafdís BA prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði hjá Atla Ingólfssyni, Hildigunni Rúnarsdóttur og Úlfari
Inga Haraldssyni. Síðastliðið sumar lauk Hafdís mastersprófi í tónsmíðum frá Det Kongelige Danske Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn þar sem hún nam tónsmíðar hjá Hans
Abrahamssen, Bent Sørensen, Niels Rosing Schow og Hans Peter Stubbe Teglbjerg. Auk þess hefur Hafdís fengið tilsögn í tónsmíðum hjá Sir Peter Maxwell Davis og Simon
Bainbridge.