Kæru foreldrar og forráðamenn
Við vonum að allir hafi átt frábært sumar - nú hefst kennslan við Tónlistarskóla Árbæjar!
Kennslan hefst mánudaginn 25.ágúst - þó fara fyrstu dagarnir oft í að klára að ganga frá stundatöflum enda margir grunnskólar að byrja sama dag.
Kennarar munu hafa samband við sína nemendur í lok þessarar viku.
Skólagjöld eru öll komin inn á Abler. Hægt er að skipta greiðslum og nýta Frístundakortið þar, við minnum á að það þarf að merkja við "afsláttar kúpon" ef nýta á systkinaafslátt.
Við bjóðum nýja kennara hjartanlega velkomna, það eru þau Jökull Hjaltason píanókennari, Þórunn Þórsdóttir píanókennari og Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir söngkennari.
Við minnum á að skólinn hefur flutt í Stangarhyl 7 (Gengið inn baka til, hægra megin við húsið). Þeir nemendur sem hafa verið í Krókhálsi koma þangað í tíma.
Skrifstofan er opin mán-fimmt kl.14:00-16:00 og alltaf hægt að senda tölvupóst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hlökkum til að hittast nú í haust!
Tónlistarskóli Árbæjar
