Tónlistarskóli Árbæjar - Í þínu hverfi

Kennsla fer fram í : Ingunnarskóla - Norðlingaskóla - Selásskóla - Ártúnsskóla - Stangarhyl 7 -
→

Kæru nemendur og forráðamenn

Við í Tónlistarskóla Árbæjar eigum nú spennandi tímamót fram undan – skólinn er að flytja!

Eftir 12 góð ár að Krókhálsi 5 er komið að því að við flytjum starfsemina í nýtt og glæsilegt húsnæði: Tónhyl, að Stangarhyl 7 í Árbænum. Við erum afar þakklát fyrir tímann hér í Krókhálsi, en nú er komið að nýjum kafla í sögu skólans. tonhylur1

Kennslan í grunnskólunum heldur áfram með óbreyttu sniði og nemendur þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af breytingum þar. Flutningarnir sjálfir fara fram í lotum og þeim verður að fullu lokið fyrir 1. júní. Einhverjir tímar fara fram í lok þessarar annar en kennarar munu láta nemendur sína vita ef svo er. 

Tónhylur er sérstaklega hannað húsnæði fyrir tónlistarstarfsemi. Þar má finna fjölbreytt hljóðver, samspilsrými og vel útbúnar kennslustofur – umgjörð sem opnar fyrir enn fleiri möguleika í námi og sköpun.

Við hlökkum mikið til að taka á móti nemendum okkar í þessu nýja og spennandi umhverfi og halda áfram að efla tónlistarþekkingu og gleði með ykkur öllum.

Með bestu kveðju,
 Stefán Stefánsson
 skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar

tonhylur2

587-1664

tonarb@tonarb.net

Heimilisfang

KRÓKHÁLS 5 og 5a
STANGARHYL 7 (Bakdyramegin)
110 REYKJAVÍK
110 REYKJAVÍK

Skrifstofa

Mánudag til föstudags
MÁNUDAG - FIMMTUDAGS
09:00 - 17:00 (GMT 0)
14.00 - 16:00