Tónlistarskóli Árbæjar býður upp á nám um notkun tölva í tónlistarsköpun. Námskeiðið hefst haustið 2016.
Námið er hugsað fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.
Kennt verður eftir skólatíma.
Hópurinn kemur til með að taka upp hljóð, hlaða þeim í tölvu og vinna úr þeim skemmtilega tónlist undir handleiðslu tveggja reyndra kennara.
Notast verður við eftirfarandi opinn hugbúnað: Reaper, Audacity og Soundtrap.
Nemendur þurfa hvorki að hafa reynslu af tónlist né að eiga nein tæki til tónsköpunar.
Öll tæki og tól eru á staðnum, en gott er ef nemendur eiga eða hafa afnot af fartölvum eða snjalltækjum að hafa þær með.
Kennslan fer fram á Krókhálsi 5 - Tónfræðistofu.
Birt með fyrirvara um breytingar.
Kennarar eru Hafdís Bjarnadóttir og Helgi Reynir Jónsson sem bæði hafa víðtæka þekkingu og reynslu á notkun tölva í tónlistarsköpun.